Tími til þess að halla sér aftur og slappa af og lesa skemmtiefnið frá Trúbadornum....
Þeir sem kunna Hesta-Jóa
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 mars
28.03.2007 20:06:22 / BjörnM

Það er allavega komið vor...

Já það er óhætt að segja það. Veðrið er orðið töluvert betra hérna úti. Um 15 gráður á hverjum degi og í mesta lagi smá gola. Ég er alveg viss um að það gæti orðið gaman að kveikja bál og spila á gítar og syngja og drekka bjór hérna úti. Þó það yrði kannski ekki jafnskemmtilegt og heima á Íslandi undir bláhimni blíðsumarsnætur. Vá hvað ég ætla að upplifa það a.m.k. einu sinni í sumar.

Annars upplifði ég það um daginn, laugardagsmorgunn nánar tiltekið, hvað danir reykja mikið á skemmtistöðum. Þannig var það að ég fór með fólkinu úr vinnunni út á smá sprell og það var mjög gaman. Það var farið í keilu og svo út að borða og svo á einhvern bar. Mikið stuð en mikið svakalega var reykt. Ekki það að ég muni mikið eftir því en það hlýtur að vera því á laugardagsmorguninn vaknaði ég við það að ég var með einhvern mesta hausverk sem ég hef á ævinni haft. Shit. Hann varð í 5 og 1/2 tíma. Það voru ekki góðir klukkutímar. En gott að það er búið.

Hmmm..... jæja.

Ég bið nú bara að heilsa í bili.

Kv. Björn M


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 23:59:55 / BjörnM

Sælinú...

Góðan daginn...

 Eitt þægilegasta lag sem til er, er sennilega lagið með Coldplay sem heitir Amsterdam. Ekki hef ég lesið mér til um það hvernig stendur á nafninu en þess er alla vega ekki getið í textanum, sem ég by the way setti í lag dagsins. Það byrjar á þessu fína og einfalda píanóspili sem ég skal læra áður en langt um líður. Það er nú aðallega það sem mér finnst flott en svo er lag línan líka mjög fín. Þetta er sérstaklega þægilegt þegar maður er að fara að sofa, eiginlega alveg tilvalið. Fær mann svoleiðis gjörsamlega til þess að slaka á.

Ég mæli með að fólk hlusti aðeins á það....

Þetta var svona aðeins til þess að byrja, ég skrifa svo aftur fljótlega.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 20:46:46 / BjörnM

Stoltir syngja sveitungar góða vísu.....

Mér datt í hug að setja inn mynd á síðuna mína. Ég hélt það yrði ekki flókið en þó hef ég aðeins þurft að hugsa en þetta var samt ekkert mál og enginn höfuðverkur þannig.

Myndin sýnir það og sannar að það var mikið stuð hjá Birni M og félögum á þorrablótinu um daginn. Við erum þarna nokkrir skagfirðingar að syngja þjóðsönginn okkar af mikilli innlifun.

Þarna má sjá okkur Óla Barðdal og Ragnar Pál bróðir minn og ef ég sé rétt erum við að syngja: ..AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA...." í kaflanum : ...því tengdapAAAAAAAAAAAAAAAAAbbi tilvonandi...."

Annars er það að frétta héðan að allt er í rugli þar sem það kom ó mæ godd snjór. Allt fór gjörsamlega í vitleysu hérna í Árósum. Hraðbankar hættu að virka, strætóar hættu að keyra og stofnunum var lokað, þ. á m. vöggustofunni sem ég vinn á. Þeir einu sem létu sig hafa það að mæta í vinnu voru kaupmennirnir. Enda eru dönsku kaupmennirnir sem enn eru eftir í bransanum drifnir áfram af íslenskum kollegum þeirra sem hafa séð þetta mörgum sinnum áður og kalla þetta bara létta janúar snjóhríð. Mér fannst samt fínt að fá frí í vinnunni þannig ég kvarta ekki.

Við Heiða létum okkur nú fátt um finnast og drifum okkur í heimsókn til systur minnar út í sveit og sú ferð, sem venjulega tekur 1 tíma til 1 og 30 mín. tók rúma þrjá tíma í þetta skiptið. Gríðarlegt stuð.

Annars bið ég bara að heilsa í bili og áður en þið skrifið í skoðanir vil ég byðja ykkur um að virða myndina fyrir ykkur. Þarna má með berum augum sjá stolta skagfirðinga syngja eins og skagfirðingum einum er lagið. Þið hin getið lært af því að bara virða myndina almennilega fyrir ykkur.

Kv. Björn M.


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 19:59:18 / BjörnM

Þannig er nú það....

Jæja.... þá er þessi miðbikudagur búinn og ég verð að segja að ég er nokkuð feginn að vera kominn heim í sófann og ekkert annað eftir heldur en að horfa á sjónvarp eða vera í tölvunni.

Þegar við Heiða litum út í morgun var byrjað að snjóa og sennilega búið að snjóa í einhvern tíma. Það er nú kannski ekki frásögum færandi fyrir okkur íslendingana en það hríðaði í allan dag og það er eitthvað sem kemur dönunum alltaf í opna skjöldu. Það gekk samt sæmilega á leiðinni í vinnuna. Við Heiða hittumst svo í bænum og á leiðinni heim stóð strætóinn kyrr í 30 mín. eftir að hafa keyrt í 10 mínútur sem þýðir að túrinn sem venjulega tekur 20-30 tók klukkutíma. Alveg hreint yndisleg upplifun. Eftir vinnudag þar sem maður er umkringdur börnum getur maður orðið mjög þreyttur og það að þurfa að bíða í hálftíma í strætó og vita ekkert hvenær hann fer af stað tekur gjörsamlega frá manni alla orku.

En nóg um það. Þorrablótið var skemmtilegt. Helga Braga stóð sig vel. Ég hitti hana meir að segja við barinn og tók í höndina á henni en man því miður lítið eftir sem ég sagði við hana því.... tjahh þetta var jú þorrablót. En maturinn var góður og Sixties stóðu fyrir sýnu.

Jæja... þetta fáið þið í bili

Kv. Björn M


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 13:09:05 / BjörnM

Ég er að fara að blóta....

Já í kvöld er kvöldið sem við erum búin að vera að bíða eftir í soldið langan tíma. Við erum að fara að borða íslenskan þorramat, íslenskt lambakjöt og síðast en ekki síst, næstum því íslenskt sveitaball. Það eru alla vega sixties sem halda uppi stuðinu og síðast þegar ég fór á ball með þeim fannst mér þeir bara mjög góðir. Þetta verður kannski ekkert miðgarðsball en ég hlakka engu að síður mikið til. En við erum sem sagt að fara á þorrablót sem haldið er hérna í árósum og það finnst mér bara vera snilld. Helga Braga er kynnir eða veislustjóri og það er bara gott um það að segja. Hefði alveg verið til í Pétur Jóhann en ég sætti mig sko alveg við hana Gyðu Sól og leyfi mér án nokkurs efa að gera væntingar til hennar.

Það er nú það helsta á döfinni. Ég allur að koma til formslega séð. Búin að vera að mæta á Heklu æfingar og fara út að hlaupa auk þess sem við Heiða erum búin að vera mjög duglega að fara í góða göngutúra.

En ég sé ekki ástæðu til að hafa þetta mikið lengra í bili. Bið bara að heilsa í bili.

Kveðjur til Íslands

Björn M


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 21:34:58 / BjörnM

Mount Doom!

Já þetta er allt að hafast. Ég er byrjaður á fullu að lesa Return of the King og er kominn í kaflann sem heitir Mount Doom (Dómsdyngja eða eitthvað þaðan af verra í íslensku þýðingunni) og ég verð að segja að eftir 2 ár er ég farinn að sjá fyrir endann á þessu. Jess..... En eftir ROTK tekur The Silmerill bara við og það verður örugglega erfiðari og flóknari lesning. Ég vil taka það fram að ég ákvað að lesa þessa sögu á ensku. Sennilega væri ég búinn með hana tvisvar sinnum ef ég hefði lesið hana á íslensku.

Annars er ég farinn í gang með umsóknina fyrir sjúkraþjálfarann aftur og hef komist að því að umsóknin sem ég sendi inn síðasta vetur komst sennilega ekki í hálfkvist við það sem heitir fullnægjandi fyrir umsóknir í þetta nám. En nú er maður reynslunni og þekkingunni vitrari og þá er bara að vona að betur gangi næst.

Um næstu helgi verður svo farið á þorrablót. Festið byrjar hjá Óskari skólastjóra og Erlu og þaðan verður haldið á Folkdansernes Hus þar sem þorrablótið fer fram. Mmmmmm..... íslenskur þorramatur og lambalæri, íslenskt líka, það verður geeeeðveikt. Ég ætla samt að reyna að vera hófsamur í drykkjunni núna en síðast þegar ég fór að djammið hérna var um áramótin ef ég man rétt og vissulega er langt síðan en ég kom ekki heim fyrr en um 7 leytið á nýársdagsmorgun og var eins og draugur 1. og 2. janúar. Nenni einfaldlega ekki að standa í því aftur.

Jæja... þetta er fínt í bili. Bið að heilsa öllum á íslandi og vil bara segja að það er miklu leiðinlegra veður hérna úti að vetri til og vatnið hérna kemst ekki í hálfkvist við það sem við þekkjum. En bjórinn er ódýrari.

Kv. Björn M


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 22:42:32 / BjörnM

Maður spyr sig...

Ég hef rekist á ófáar síðurnar þar sem stendur:

Ég er farinn á eitthvað.bloggar.is.

Er það vegna þess að það er auðveldara að ýta á takkana á lyklaborðinu þegar maður er á þeirri síðu eða er það vegna þess að allir aðrir eru að flytja sig þangað yfir eða er það vegna þess að eitthvað.bloggar.is hljómar betur, sem skiptir litlu máli því oftast eru addressurnar skrifaðar og lesnar en ekki sagðar.

Maður spyr sig svo ég vitni í titilinn.

Ég flutti mig hingað á blog.central af folk.is því það var ekki hægt að hafa skoðana könnun á þeirri síðar nefndu. En ég held að ég muni aldrei flytja mig héðan. Ég er að berjast við það að ná fjölda heimsókna upp í 10000 og er ekki nálagt því hálfnaður. Mér finnst að fólk ætti hreinlega að taka hann Siggeir vin minn til fyrirmyndar í þessu máli en hann er enn á gamla góða folk.is enda gríðarlega svalur maður þar á ferð að eigin sögn.

En maður spyr sig.

En að öðru máli.

Merkilegt hvað skot í stöng getur breitt morgundeginum.

Við Heiða horfðu æst á landa okkar tapa fyrir litla bróður í fjórðungsúrslitum HM í handbolta. Össss.... Ég grét mig næstum í svefn vitandi að ég væri að fara að vinna með fullt af dönum daginn eftir og bara dönum. Íslenska stelpan á vöggustofunni sem átti að styðja mig mætti ekki einu sinni. En danirnir viðurkenndu það þó að þetta hefði getað farið á báða vegu og ég gagnrýni íslenska landsliðið ekki því þetta var og mun verða besti leikur mótsins. Ekki spörning.

Svo er búið að uppfæra Lag Dagsins og Lag Dagsins er nú Tvær úr Tungunum sem ég ætla að allir líti á og læri.

Já ég var víst búinn að lofa því að tilkynna um heimkomu en að öllum líkindum verður hún í maíbyrjun. Ég fer svo aftur út í júlílok.

Þá vitið þið það.

Ef þið eruð ekki enn búinn að lesa ljóðið sem ég samdi um skagafjörðinn minn þá hvet ég ykkur til þess en það er hérna neðar á síðunni.

Svo er kominn nýr liður á síðuna sem heitir fróðleiksmoli um bítlana og mun ég uppfæra hann annað slagið. Alltaf gaman að læra um bítlana.

Jæja... nóg í bili..

Kv. BM


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 18:22:04 / BjörnM

Ég skil

Ég er búinn að átta mig á þessu. Þeir hjá blog.central.is eru ekki eins vitlausir og þeir líta(eða er það lýta Geir???) út fyrir að vera. Málið er að þeir stjórna teljaranum á síðunum. Til þess að halda fólkinu bæta þeir bara 20 við töluna sem telur heimsóknir í dag og þá líður manni geðveikt vel. Hugsar að maður hlýtur að vera virkilega vinsæll og æðislegur.

Þetta er kannski langsótt enda þarf mann eins og mig til þess að átta sig á þessu.

Jæja... ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að nefið á mér fylltist af hori og slími á mánudaginn. Þannig ég var bara heima á þriðjudag og miðvikudag sem var mjög næs. Það er alltaf soldið notalegt að vera bara heima og gera ekki rassgat allan daginn. Bara leika sér í PlayStation2 allan daginn. En ég mætti svo í vinnu í dag hress og kátur þrátt fyrir það að nefið væri ennþá hálffullt af ógeði og sulli.

Það er svo sem ekki mikið að frétta annars. Janúar er að verða búinn og eins og flestir vita þá tekur febrúar við og varir næstu 28 daga eftir 31. jan. Í febrúar er fullt af ammælum hérna úti hjá familíunni þannig hann verður ekki lengi að líða. Svo ég tali nú ekki um þorrblótið sem verður hérna hjá Íslendingafélaginu í Árósum. Það verður kannski ekki eins og Þorrablótin heima en pott þétt betra en ekki neitt. Svo ef ég heyrt að Helga Braga eigi að vera veislustjóri. Og það verður þorramatur og íslenskt lambakjöt. MMMMMMM. Langt síðan maður fékk þannig...

Jæja. Þegar febrúar gengur í garð kemur tilkynning inn á bloggið sem segir til um það hvenær trúbadorinn kemur heim á klakan í sumarfrí. Biðið spennt.

Kv. Björn M


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 00:05:46 / BjörnM

Alltaf gaman að góðum skáldskap...

"....og þannig hljómaði sagan af því, þegar hann Sússi kom heiminn í."

Texti úr baggalútslagi sem heitir sagan af Jesúsi, held ég. Það fjallar um komu Jesús í heiminn og er hrein og tær snilld. Sennilega hafið þið öll heyrt það en ég grenjaði úr hlátri þegar ég hlustaði á það og las textann með í jólafríinu. Ég held að þetta sé aðventulag frá því fyrir 1-2 árum en mér finnst það bara svo fyndið og flott að ég hef ákveðið að hjá mér verði það ekki jólalag heldur bara....lag. Upphaflega er þetta ekki jólalag heldur eitthvað sem þýsk strákasöngsveit gerði með einhverri orkestru í bandaríkjunum og heitir Keeping the Dream Alive.

"...þar var ungt par á ferli. Konan kasólétt, þeim var vandi á höndum."

Kannski ég setji texta í Lag Dagsins við tækifæri en ekki núna. En rétt er að geta þess að Lag Dagsins er uppfært og hvet ég alla til þess að skoða það, bara svona til þess að gera daginn örlítið betri.

Annars er lítið í fréttum. Maður er bara í vinnunni og þannig og þess á milli gerir maður lítið af viti. Ég settist reyndar niður í gærkvöldi og ætlaði að semja lag en var gjörsamlega lokaður. En uppúr því kom hins vega þetta fína ljóð um Skagafjörðinn minn og spurningin er hvort ég leyfi ykkur ekki að njóta þess hérna. Það er ekki ósennilegt að þeir sem ekki þekkja til Skagafjarðar og þjóðsagna skilji ekki bofs í þessu en það gerir þetta allt saman svo magnað.

"Fjörðurinn og sólin"

Fjörðurinn minn fagri
Faðmar sólsetrið að sér
Eins og sá semlínurnar lagði
Sór að fegurðin yrði hér

Og fjallið mann fangar með tindana tvo
Feykir hlíðinni bröttu að glóða
En samt áður er það nú svo
Sjást þá híðarnar tvær úr móa

Og kýrin hefst út' á hafi
Hana drottning dregur ei meir
Og þótt kerlingin elskað hafi
Eru klettarnir ei lengur tveir

Á andliti hennar sést ótti
Heyr öskur sem eyrun skera
Þeim gömlu dugði ei flótti
En hér verða vondir að vera

En hvað svo sem gengur og gerist
Þótt nágrannafólkið sé slungið
Er rétt að um heiminn berist
Að hér verður skálað og sungið.

-Björn


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 23:37:15 / BjörnM

Are you a wolf...or a sheep???

Góð spurning...

Er að horfa á Training Day hérna í imbanum og Denzel er að blíva.

Annars er allt í góðu. Óhreinu fötin látin hafa það óþvegið í þvottavélinni í dag og það sem hafði boðsmiðann var hent inní þurkkarann og látið snúast þar í steikjandi hita.

Annars er ég búinn að vera á tónlist.is og kaupa mér nokkur lög þar. Þetta er snilldar síða. Ekki minnst fyrir það að vera með öll þessi íslensku lög. Náði meðal annars í murr murr með Mugison og Barfly með Jeff who?. Og svo lét ég af því verða í gær. Hlutur sem ég bjóst ekki við að ég myndi gera en ég ákvað að skrifa Takk með Sigurrós. Hef hingað til ekki hlustað á þá en verð hins vegar að viðurkenna að Hoppípolla er eitt af meistaraverkum samtímans, það finnst mér allavega. Og af þeim ástæðum, og að Heiða vildi endilega eignast diskinn, ákvað ég að láta af því verða. En ekki halda að ég fari að taka þá fram fyrir bönd eins og Bítlana eða Coldplay, hvað þá Heimir og Álftagerðisbræður eða Papana, eins og þeir voru fyrir 5-6 árum.

Svo eru nottla íslendingar hér í Árósum og þar sem íslendingar eru, eru ávallt haldin þorrablót þegar tíminn kemur og nú fer að styttast í þann tíma. Það verður haldið hérna 17. feb nk. og ekki séns að ég skrópi á því. Íslenskur þorramatur og lambakjöt. Gaman væri að geta skellt sér á Þorrablót heima eins og ég gerði í fyrra með Tjörva en nú er ég hér og þannig er það.

Jæja... ég held að þetta sé þá komið í bili. Við verðum í bandi.....

Hilsen......


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 15:26:45 / BjörnM

Hvað er nú í gangi??

Ég kom hérna inn á síðuna mína í dag (11.1.07) og það voru heilir 25 sem voru búnir að heimsækja hana. Ja hérna. Þá eru 20 búnir að bætast við þá 5 sem eru hérna reglulega. Nema einhver sé að reyna að gera mig ánægðan og hafi farið 21 inn á síðuna í morgun.

En ég vil biðja ykkur góða fólk um að kvitta fyrir ykkur svo ég sjá hverjir eru að lesa. Það er nóg að segja hæ og setja nafnheimilisfangogsímanúmer við.

Annars er það í fréttum að þótt veðrið geti vissulega verið fínt í Danmörku á sumrinn og að sumrin séu löng miðað við það sem við þekkjum þá er veturinn og veðrið sem honum fylgir er ömurlegt helvítis skítaveður. Rok og rigning eins og gerist verst á íslensku sumri. Himininn virðist alltaf vera grár og áður en maður veit af hefur þetta allt saman skaðað geðheilsuna.

En hún Heiða mín er komin aftur heim sem gerir það að verkum að það er mikið notalegra að koma í kotið eftir vinnu. Í kvöld ætlum við svo að horfa á Pirates of the Carribean(Dead Man's Chest). Það verður örugglega stuð.

En annars er þetta orðið mátulegt í bili og ég bið að heilsa þangað til næst......


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 13:58:15 / BjörnM

Brátt verður árið liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baaaaaaka....

Já þannig er það.

Allt í góðu hérna nema hvað það eru raðir alls staðar og frekar chillí veður. Við fórum hina praktísku leið í flugeldakaupum og keyptum eina huge tertu og stærsta flugeldinn og þar við sat. Ódýrt, en ég stóla á það að lætin verði mikil í tertunni og hvellurinn frá rakettunni verði hár, auk þess sem ég vil líka sjá svona dreka koma fljúgandi eins og hjá Gandalf en ég fer nú rólega í að gera væntingar til danskra flugelda.

Svo keyptu ég mér írskt viskí og býð þar með nýju ári velkomið með miklu stæl.

Hmmm......

Eins og allir vita eru Manchester United efstir í ensku yfir áramótin með sex stiga forystu og ég held það séu einhver 50 stig sem skilja á milli Man Utd og Arsenal og Liverpool. Svo yljar það manni um hjartarætur að Chelsea eru farnir að misstæiga sig svo ég vona að þeir kaupi fullt af stórum nöfnum í janúar og falli svo.

En ég ætla að kveðja núna. Ég vona að þið eigið gott og skemmtilegt kvöld í kvöld og hafið það sem best þegar þið vaknið í fyrramálið. Ég vil líka þakka ykkur öllum allt á liðnum árum.

Gleðilegt nýtt ár.

Kv. Björn M


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 22:19:19 / BjörnM

www.kollegie8000.dk....Geir

Góðan daginn....

Áður en lengra verður haldið vil ég koma því á framfæri að ég var búinn að skrifa þessa fínu færslu inn á þetta blogg en einhver andskotinn gerðist og hún eyddist. Hún var skemmtileg, persónuleg og fræðandi og ég er svo brjálaður yfir því að þetta hafi farið svona að ég get eiginlega ekki líst tilfinningum mínum með orðum nema síðan verði ógeðslega löng og ljót. En þetta...gjörsamlega...þoli ég ekki. Getið þið, fólk sem stjórnar þessu blog..systemi, haft þetta a.m.k. pott þétt. Þetta hvetur mann ekki til þess að halda áfram á blog.central en ég er góður maður sem kann að fyrirgefa of viðurkenna mistök annarra og ætla að gefa ykkur einn séns í viðbót. Helt ærligt.

Nýtt Lag Dagsins er komið.

En já, Geir. Addressan á síðuna fyrir kollegie í Árósum er www.kollegie8000.dk
Værsgo'.

Annars er allt í góðu. Ég er einn hérna heima í kotinu núna þar sem hún Heiða míner farin heim. Það er ekki alveg eins skemmtilegt að koma heim en við erum með nokkrar sjónvarpsstöðvar, internet, playstation2 tölvu og síðast en ekki síst, bjórinn hérna er geðveikt ódýr. Þannig ég höndla þetta ágætlega, alla vega þangað til mamma og pabbi koma. Þau koma til Árósa einhvern tíma eftir miðnætti á morgun.

Gaman að segja frá því, fyrir ykkur MAinga sem lesa þetta, að ég hitti hann Baldvin okkar Karel um daginn. Við fengum okkur bjór og spjölluðum heilmikið saman. Hann lítur mjög vel út og hefur aldrei verið jafnmikið foxy beib og nú. Hann er í leiklistar hojskole hér í DK og er að spá í að koma hingað út og læra næsta vetur. En ekkert er þó ákveðið enn.

Ég verð annars að segja frá því að ég er farinn að vilja komast á íslenskt sveitaball. Finna raka þunga loftið, blandað af reykinga-, bjór-, svita- og ilmvatnslykt sem varla er hægt að anda að sér. Heyra varla nokkurn skapaðan hlut fyrir háværri tónlist sem maður hlustar eiginlega ekkert á en syngur samt með af mikilli innlifun. Dem hvað ég ætla á ball þegar ég kem heim næst. Og fá mér greifapizzu, subway, íslenskt vatn, harðfisk með smjörva, samloku úr Sauðárkróksbakaríi og margt fleira.

En annars verðið þið að fyrirgefa mér það að ég náði ekki að senda eitt jólakort í ár. Mér þykir það mjög leiðinlegt en lofa að allir fá að ári liðnu. Sorrí. Ég mun standa mig betur næst.

En þetta kemur í staðin:

Ég vil óska öllum, vinum og vandamönnum, frændum og frænkum og tengdafjölskyldunni stóru og henni ömmu minni góðu, gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár. Ég vil þakka fyrir allt á liðnum árum og vonast til þess að hitta ykkur glöð og sperrileg eftir mikið át yfir hátíðarnar. Skemmtið ykkur vel um áramótin og slettið almennilega úr klaufunum. Þeir sem eru 5-15 ára, gerið eitthvað svakalegt af ykkur(dyraat og þannig), 16+, dettið ærlega í'ða og fagnið árinu eins og það komi bara einu sinni og kveðjið það gamla eins og það á skilið.

Kv. Björn Magnús.

Hjulene på bussen dreje rundt, rundt, rundt.....


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 22:39:41 / BjörnM

Ehmmmm...ehmmmm

Já góða kvöldið.

Þá er loksins komið internet í litlu íbúðina okkar heiðu hérna í Danmörku. Enginn smá h******* munur maður. Ekki það að ég sé að fara að lofa daglegu bloggi en nú kannski fær fólk fréttir af manni annað slagið. Ehhh.... eftir að hafa búið hjá bróður mínum og hans familíu í þó nokkurn tíma fengum við loksins íbúð í hinum enda árósa.Lítil og nett íbúð í norðurútjaðri borgarinnar þar sem eru mikil rólegheit og yfirvegun. Ég er kominn með vinnu sem pædagogmedhjælper þar sem ég vinn á vöggustofu, sem er hálfgerður leikskóli fyrir börn á aldrinum 0-3 ára, sem þýðir að við losnum við þau áður en þau fara að koma með of vandræðalegar spurningar. Sennilega verð ég að vinna þar út mars og eftir það er seinni tíma vandamál.

Það er svo sem gaman að segja frá því að þegar ég var búinn að vinna þarna í viku fóru allt í einu allir í verkfall og áður en ég vissi af var ég á allskonar fundum og mótmælendagöngum og þess háttar, og talaði varla hálfa dönsku. Og eftir að hafa verið viku í verkfalli komst ég að því að það er ólöglegt að fara í verkfall hérna og maður borgar sekt ef maður vinnur ekki sína vinnutíma. Usssss..... þá var ég fljótur að hætta þessari vitleysu.....

Jæja... best að hætta svo einhver nenni að lesa þetta....

Kv.Björn M


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 00:08:29 / BjörnM

Jæja....

Góða kvöldið...

Góða nótt myndi ég reyndar segja við þá sem eru í myndi ég reyndar segja við fólk í Danmörku þa sem klukkan er orðin tvö.

Ég er hérna í rólegheitum, búinn að drekka nokkra bjóra og fá mér smá viský sem er alltaf gott og örlítið af tóbaki. Annars er allt gott í fréttum.

Við í SF Heklu spiluðum leik í dag við efsta liðið í riðlinum okkar af einhverjum 12-14 liðum og töpuðum en stóðum okkur engu að síður mjög vel og kallinn sjálfur, Björn M skoraði annað markið af tveimur. Ég er nú bara nýbyrjaður að kynnast og spila með þessum strákum en þeit eru mjög fínir og margir fínir knattspyrnumenn. Við náðum að yfirspila liðið nokkrum sinnum og þegar við gerðum það áttum við í fullu tré við þá. En ég náði að setja eitt og það var mjög gaman. Fyrsta markið í sumar og reyndar síðustu...hvað tvö ár.....djöfull er ég magnaður.

Það er búið að vera mjög gott veður hérna og í dag, á leikdegi, var ógeðslega gott veður, áreyðanlega 25-30 stiga hiti, sól og logn. Hrein snilld. Heiða kom og horfði á leikinn og við vorum sammála um að ég hefði bara staðið mig alveg hreint ágætlega.

Á morgun er stefnan sett á danskan súpermarkað um morguninn og svo í mat til Áslaugar systur í Farre seinni partinn. Það verður eflaust mikil veisla.

Svo eru Alli og Ingvi komnir hingað. Ég á enn eftir að hitta þá en ég finn hvað dagurinn, sem það verður, nálgast hratt og þá veður farið með þá á kínverskan veitingastað sem er sá besti í heimi.

Annars bið ég að heilsa í bili....

Kv. Björn M...


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2